Tek að mér skipulagnu ævintýraferða!Snorri Geir Snorrason

Góðan daginn eða eins sagt er á siglufirði ´´hvað ert þú að vilja hingað aðkomudjöfull, viltu verða laminn?´´.


Já ég hef nú gert nokkuð mörg mistökin og ekkert lát var því um helgina en ég ákvað að fara til sigló og kíkja á árna einar en það sem bjargaði helgini var að við unnum ks/leiftur 2-1 á sunndaginn, ekki leiðinlegt! og ég kem með ítarlega á ferðasögu hér á eftir. mig langar að langar að byrja á að þakka fyrir commentinn frá ykkur og ég sé að ég hef hitt á veikan blett hjá einhverjum sambandi við áfengissölu í matvörverslunum, sérstaklega hauk eða ´´Doninum´´ en ég hefði svo sem átt að vita það því við erum sjaldan sammála um nokkurn hlut. mér finnst bara vera kominn tími á framför í þessu málum en ekki alltaf að hjakka í sama farinu!

En eins ég sagði áðan þá fór ég til siglufjarðar um helgina en ég var sendur til að njósna um komandi andstæðing, haukur kom til greina en hann tengdur  of sterkum tilfinningabödum við sigló þannig að það gekk ekki þannig að ég ákvað að fórna mér eða take one for the team eins og sagt er(þetta er ekki satt, mig vantaði bara afsökun fyrir ferðinni og þetta var það eina sem mér datt í hug), ég kom á sigló seint á föstudegi og ............................................................ ............................................................................................................................... ............................................................................................................................... ................................................................................................................................ ................................................................................................................................ ................................................................................................................................ ...........................................fór svo loksins á sunnudeginum. það er ekkert að gerast þarna og skil ekki hvernig nokkur maður nennir að hanga þarna, það hefði verið skemmtilegra spila bingó með eldri borgurum alla helgina en að vera þarna, ef þið fáið þá hugdettu að kíkja á sigló í einhverja daga sláið þá ykkur þá sjálf utanundir og skammist ykkar og leyfið slíkum hugsunum að að koma aldrei aftur inní hausinn á ykkur. en ég læt þetta nægja að sinni, takk fyrir mig!

p.s. þær sögur ganga hér fjöllunum hærra að páll óskar verði á mælifelli um páskana, allir á krókinn um páskana að skella glösum saman

Snorkur biður að heilsa

Snorri Geir Snorrason

Nú er mál að blogga að tilefni dagsins.

Ég vil byrja þetta blogg á að lýsa andstyggð minni á vinstri grænum, ég tala nú ekki oft um stjórnmál en í ljósi síðustu verka vinstri grænna á nýloknu þingi verð ég bara að leyfa reiðinni að leika lausum hala, í mínum huga eru þessir vesalingar hópur af litlum hræddum stelpum en þeir stoppuðu frumvarpið sem leyfði sölu bjór og léttvíns í matvöruverslunum, ég sver það ef ég rekst á einhvern vinstri grænálf þá mun ég hrækja á hann, ég meina..........hversu mikill snilld hefði það verið að vera staddur uppí hlíðarkaup á þriðjudagskvöldi og ætla að kaupa mjólkina út á cheeriosið en svo er blasir við manni bjór á kæliskápnum og maður hugsar kannski ´´hvernig ætli carlsberginn sé á hunangcheerios´´ og hver hefur ekki lent í því að vera kannski að djamma á föstudagi og tekur ákvörðun að djamma líka á laugardeginum en svo sefur maður yfir sig því ríkið er bara opið til 14 og maður hugsar ´´NEI DJÖFULLINN!!!! kvöldið ónýtt´´ þá væri gott að geta tekið sér rölt út í skaffó og reddað kvöldinu. eitt er víst, fyrr verður óli skorr við konu kenndur en að ég kjósi vinstri græna í komandi kosningum.


Svo er maður alltaf á fullu í boltanum og nú er einmitt sá árstími að liðið að vera koma sér í form með því að hlaupa, lyfta og hlaupa meira en nýverið tekinn sú ákvörðun að senda liðið í body pump til magga hinriks. (en hann er einmitt sú týpa sem getur lamið górillu í frítíma sínum) ég hafði oft séð fólk í svona tímum séð að það var bara með frekar litla þyngd á stönginni þannig að ég hugsaði þegar ég mætti í fyrsta tímann ´´hversu erfitt getur þetta verið´´ en svo tóku bara við þessi gríðarlega líkamlega áreynsla og maður fann bara hvernig maður lamaðist jafn og þétt í höndum og fótum og endanum lippaðist maður bara niður. en það var ekki búið þá, armbeygjur og magaæfingar voru eftir ég hugsaði þegar ég lá þarna í eiginn svitapolli og með óráði ´´hvað er næst? kemur guðmundur í byrginu í leðurgallanum með gati í klofinu og refsar okkur þegar við liggjum hreyfingarlausir á gólfinu´´ sem betur fer gerðist það ekki. svo daginn eftir þegar ég vaknaði var ég með svo mikla strengi að lá bara í fósturstellingunni og gat hreinlega ekki hreyft mig, ég efast um að þetta hreinlega hollt fyrir menn á mínum aldri.


Jæja ég ætla að fara enda þetta blogg en eitt að lokum, þið munið eftir hápunkti partýsins sem ég sagði frá hérna í síðasta bloggi en uppistandarinn heitir Dane Cook og er bara fyndinn en fyrir ykkur sem voruð ekki í partýinu og fattið kannski ekki djókið á bakvið þetta þá fann ég snilldarklippu á netinu af þessum brandara, endilega tékkið á þessu, þetta er bara snilld:

http://www.youtube.com/watch?v=UO9PwSYqOos



p.s. það er ekki ennþá kominn áskorun á berta, endilega komið með hugmyndir, helst einhverjar þar sem rassgatið á honum á ekki í hlut


Snorkur biður að heilsa



''Einhver skeit í fatahengið!!!!!!''Snorri Geir Snorrason

Snilld! snilld! snilld! og aftur snilld! já eins og alþjóð veit þá var opinber meistaraflokksgleði  Tindastóls haldin í gær og þessi dagur mun lengi lifa í minningunni, þetta byrjaði allt  samkvæmt skipulagðri dagskrá skemmtinefndar með hitting á kaffi krók og þar fengum við tilboð mat og bjór og vil ég þakka jóni dan fyrir sitt innlegg í þessa fjölskyldugleði, en svo var það partýið og það var mikið sprellað, lag kvöldsinns var tekið(Afternoon delight) og í framhaldi af því var hringt í aðalsteinn og lagið tekið honum til heiðurs(gamli skólinn) og maður bókstaflega heyrði hann rauðna í framann í gegnum símann. En ég ætla að leyfa myndunum að tala sínu máli en mig langar að segja frá hápunkti kvöldsins áður, en á föstudagskvöldið  var leikur hjá okkur það var farið á einkabílum.  Ég , ingvi, fannar f og bjarni fórum með berta og á leiðinni leyfði ingvi okkur að hlusta á uppistand sem var á  ipodinum hans og það var ekkert lítið fyndið en svo í partýinu ákváðum við að leika  hluta af því og þannig plata partygesti, þetta byrjaði þannig að ingvi fékk  sér sæti  innan um fólkið og eftir smá stund  kom ég inní stofuna frekar alvarlegur á svip, ég get verið frekar alvarlegur þegar sá gállinn er á mér, ég lækkaði í tónlistinni (eða öllu heldur disknum hans jóa sem var á repeat allt kvöldið, Skelfilegur diskur) og þegar allir voru þagnaðir og öll augu á mér þá lét  ég sprengjuna falla ´´einhver skeit í fatahengið , hvað er málið?´´ og svipurinn á mannskapnum var priceless og allir trúðu þessu og þá kom ingvi sem sitt ´´HA? vonandi ekki á jakkann minn´´ en þá gat ég ekki  þetta  lengur og sprakk úr hlátri en húmorinn á bakvið þetta er að ingvi átti að hafa skitið í fatahengið og þykjast svo ekki hafa gert það. en myndirnar bíða óþreyjufullar eftir að fá orðið það er komið að því en það eru líka fleiri myndir í linknum efst til vinstri undir linknum ´´myndir´´.


  Húsráðandinn fékk hárið hans Egills  Helgasonar(Silfur Egils) lánað með því skilyrði að skila  því fyrir kl. 12 á sunnud.(og vel rakaður að auki)



 Konráð lét græða á sig bringuhár fyrir partýið til heiðurs húsráðandanum sem ég skil ekki alveg því  það hefði verið minnsta málið að lána honum nokkur.


  Hvað get ég sagt..............?


 Ingvi og fatahengið góðaBrosandi


 Ég held að Mr. Magoo sé að leita að gleraugunum sínum


 Hawaian Tropic sáu sér ekki fært um að koma en þær sentu staðgengla sína,  fallegt af þeim.


 Guðbrandur átti að vera með sögustund í eldhúsinu en  kom ekki vegna launadeilna og þá var var róbert fenginn til að leysa hann af og hann stóð sig vel.


 Gummi vildi sýna okkur ljósabekkjatanið en var sem betur fer stoppaður af.


 Bjarki  var ráðinn sem siðferðisvörður partýsins og passaði krakkana.


 Hjörvar setti upp andlitsföll sem einkenndi partýið.


 Berti ákvað að leika Gísla Marteinn á eldri árum.


 Sem betur fer kom Röggi órakaður annars hefði ég líklega reynt við hann.

 Svo fórum við í hænudrykkjuleikinn sem skemmtinefndinn lærði á danmörku en hann vakti gríðarlukku.




Snorkur kveður

Þvílíkur léttirSnorri Geir Snorrason

Jæja gott fólk, í dag er drottins dýrðar dagur, Miðvikudagurinn 14.mars 2007 eða dagurinn sem ég má raka mig!! Dagurinn  byrjaði ósköp venjulega með vakningu kl. 7:15 og þá var klórað sér í framan og farið í vinnuna og klórað meira og minna allan daginn og að loknum erfiðum vinnudegi var farið í skaffó og splæst í nýja rakvél fyrir verkið eða Gillette Fusion, miðað við hvernig beckham lék í auglýsingunni varð ég bara að koma svona vél, en núna er ég  búinn að raka mig og er 2 bjórkippum ríkari og nú er það bara að skora á   berta  í einhverja vitleysu en hvernig skorar maður á mann sem safnaði möllett að eiginn frumkvæði, þannig ég þarf hjálp frá ykkur lesendur góðir, endilega komið með hugmynd  að áskorun á berta. Og eins ég lofaði þá fylgja  nokkrar myndir  fyrir fólkið sem sér mig ekki daglega.                                           

   





en svo er það laugardagurinn, ég fæ bara gæsahúð að tala um það, en það er djamm hjá fótboltaliðinu og ostarfandi skemmtinefnd er búinn að skipuleggja rosalegabb dag.  það byrjar strax eftir æfingu á laugardaginn með hitting á kaffi krók og horfa á leiki dagsins í enska boltanum og tilboð verða á mat og bjór, en svo um kvöldið verður partý heima hjá snorknum eins svo oft áður, maður er farinn að upplifa sig sem eftirlíkingu af van wilder, í partýinu eru reglur og ákvæði sem eru eftirfarandi:



1.  No touching  of the hair or face, THAT´S  IT!!!!!!!






2. Þema kveldsins er hárkolla og axlarbönd, skylda er að mæta með þennan búnað


3. Ef regla 2 er brotinn þá þarf að syngja fyrsta versið úr Afternonn Delight fyrir alla sem komnir eru í partýið


4. Við inngöngu í partýið verður að syngja viðlagið úr Afternoon Delight(Sky rockets in the flight, afternoon delight)


5. Ef viðlagið er ekki sungið við inngöngu má skemmtinefd flengja viðkomandi á berann afturendann

6. Bannað er að sulla niður í sófa, stóla ,eldhús, gólf, rúm , fatahengi, vask, borð, svalir, niður af svölum, tölvu, hillusamatæðu, mottur, sjónvarp og allt annað sem hægt er að sulla á

7. Bannað er að henda rusli niður af svölum

8. Ef reglur 6 og 7 eru brotnar þá má húsráðndi kýla viðkomandi í magann

9. Ef nágrannar kvarta(sem eru allt graðar miðaldra konur) verður yngsti látinn sjáum þær

10. Bannað er að hanga einn útí horni eða vera einn með sjálfum sér

11. Ný skemmtinefnd verður valinn og mega fyrrinefndarmenn ekk verða valdnir aftur og þeir koma með uppástungur að nýrri skemmtinefnd

12. Ef þið ætlið að búa til ykkar eiginn reglur þá fær fyrirliðinn að míga á viðkomandi út á svölum

13. IF YOU DISAGREE......WE WILL FIGHT YOU

Kveðja Skemmtinefnd


En dagskrá partýsins er skipulögð til þaula en mæting er kl 20:00 heim til snorksins og þegar allir eru mættir verður afternoon delight myndbandið sýnt og eftir það koma stelpurnar ú hawaian tropic keppninni í heimsókn og svo munu magni og toby, og bubbi hefur ennig boðað komu sína, vera með kassagítar stemmingu á svölunum allt kvöldið, einnig verður sirkus rvk á staðnum og taka upp partýið, og í eldhúsinu verður Guðbrandur með sögustund. þetta verður rosalegt!!!!!!!

Snorkur wilder kveður







The sun is up and the bears are fluffy!Snorri Geir Snorrason

Sælt veri fólkið, ég hef ákveðið að blogga núna þegar maður hefur tíma loksins, hver sagði svo að það væri ekkert að gera á króknum.

Um miðja þessa viku fékk ég hringinu og í símanum var litla systir mín sem er 4 ára og bauð mér í leikhús með sér og systur sinni, ásdísi, og ég þáði með þökkum enda ekki oft sem manni er boðið í leikhús og það á kardimommubæinn, við ákváðum að skella okkur á föstudaginn og mættum vel tímanlega fyrir sýningu og keyptum nammi og nóg af því. Og svo byrjaði ballið.....nei ég meina leikritið, maður var svo vanur að fara á böll í bifröst en það var víst í gamla daga, svo eftir ca. 3 og hálfa mínútu af leikritinu segir litla systir mín ''ég þarf að pissa snorri geir'' og ég hugaði ''auðvitað þarftu þess núna einmitt'' og ég spyr hvort hún geti haldið í sér og hún jánkaði kolli svo var hún farin að iða í sætinu eftir smá tíma þannig að ég ákvað að fara með hana á klósettið og það tók pínu stund og þegar við fórum aftur inn var ég varla búinn að koma mér fyrir þegar það kom hlé, týpíkst. Eftir hlé vildu systurnar setjast hjá vinkonum sínum og ég sat síðan einn eftir og hugsaði '' er þetta ekki einn af lágpunktunum í lífi mínu, ég sit hér einn og er að horfa á kardimommubæinn og ekki einu sinni litlu systur mína vilja sitja hjá mér'' og svo til að toppa þessa skemmtilegu leikhúsferð ákvað litla systir mín að fá sér nammi og einhvern veginn náði hún að kúgast af því og ældi pínu yfir sig og eftir það sagði hún við mig ''mig langar heim snorri geir'' og ég hugsaði '' það er ekkert sem ég þrái heitar núna'' en ég ákvað að harka þetta af mér og kláraði sýninguna sem var stórfín og 10. bekkur fær + í kladdann hjá mér.

en það er slatti að gerast í kvöld sem byrjar á því að bestu málarar bæjarins, dodda málarar, ætla að snæða saman kvöldverða að hætti jóns dan á kaffi krók og gera eitthvað saman eftir það, svo er líka ball á mælifelli, reyndar 16 ára ball, ég er svona á báðum áttum hvort ég eigi að kíkja á ballið því með þetta skegg lít ég út fyrir að vera pabbi einhvers á ballinu og það kæmi mér ekki á óvart ef ég yrði spurður hvort ég væri kominn til að sækja dóttur mína eða son, ég held að ég sleppi þessu bara og spari mér niðurlæginguna, en ég verð bara rólegur enda leikur á morgun á akranesi á móti haukum sem verður hörkuleikur, vona égHlæjandi

Snorkur hefur lokið máli og hneigir sig fyrir gestum

Ekkert mál, er með breitt bak!Snorri Geir Snorrason

Miðað við síðustu athugasemdir þá er pínu pressa á snorknum að koma með ferst blogg svo að fólk geti kíkt af og til á netið og fylgst með manni en snorkur er með breitt bak og stendur undir þessari pressuGlottandi

ég ætla að byrja á ferðasögu úr treflaveldinu eða danmörku eins og þið þekkið það, ég og berti ákváðum að skella okkur út um miðjan mars enda orðir þreyttir á  þrælabúðunum á Bæ, þar sem við vinnum þessa daganna, við lentum seint á fimmtudagskvöldi og komum okkur fyrir á hótleinu sem er staðsett á hinni fjölförnu götu Istegade og svo á föstud. hittum við ebbe sem spilaði með okkur í fyrra og hann sýndi okkur 1/100 af köben en við nenntum ekki að labba meira og svo hittum við hinn eiturskemmtilega Thomas sem spilaði líka með okkur og ef þið farið til köben og sjáið hann hlaupið þá eins og augað eigir og vindurinn blæs en þessi maður er án efa einn af þeim leiðinlegustu sem ég hef hitt og hef ég nú hitt þá marga leiðinlega, við fengum okkur bjór með þeim og svo fóru þeir heim og við berti fórum á hótelið að hafa  okkur tilbúna fyrir kvöldið en við fórum á írskann pub og fengum okkur tvö bjór og þar tókst mér að stela Guinnessglasi og ég er frekar ánægður með það afrek því dyravörðurinn sem vann þarna leit út fyrir að geta lamið górillu í  frítíma sínum, ekkert smá stór og sver, þannig ég hljóp eins og vindurinn þegar ég komst út en svo fórum við á enskan pub eftir það og fengum okkur meiri bjór og vorum orðnir vel rakir þegar ég ég heyrði stelpuraddir á næsta borði og fannst þær vera tala íslensku en var ekki viss og ég hugsaði ´´ nei getur það verið, eru fleiri íslengingar hérna en við, ÓTRÚLEGT´´ og það var rétt, blóðbornar íslenskar stelpur við hliðina á okkur, þannig að ég gerði eins og sönnum íslenskum skagfirðingi sæmir og sagði ´´Skál fyrir íslendingum´´  og þær litu við alveg furðulostnar að það skuli vera fleiri íslendingar í borginni og sögðu ekkert þannig að ég ákvað  að eyða ekki fleiri orðum í þær enda fór  ekki til köben til að reyna við  eitthvað sem ég gæti fengið heima á íslandi þannig við ákváðum að fara bara heim á hótel og til þess þurftum við að labba hina frægu Istegade og við þurftum að labba svona ca. 50 metra af götunni til að komast á hótelið en eftir ca. 20 metra labb þá mættum við stórum, ljótum, svörtum manni með bauð okkur dóp en við afþökkuðum það með þökkum og við vorum varla búnir að snúa okkur við þegar feitar, ljótar, svartar hórumellur buðu okkur good time og ég hugsaði ´´ ekki fyrir mitt litla líf get ég hugsað mér að eiga good time með ykkur´´ svo fór ég upp á herbergi og hugsaði hvað ég hefði gert af mér og  því guð refsaði mér á þennan hátt en svona er víst gangur lífsins. svo á laugardeginum vorum við plataðir að horfa á hinn síhressa thomas spila og það var leiðinlegt því það var kaldara en heima á íslandi en svo kvöldið fórum við heim til ebbe og djömmuðum  með honum, thomas og mark, sem var líka hérna í fyrra og öðrum thomasi sem er vinur ebbe en þar fórum ið í asnalegasta drykkjuleik sem sögur fara af, einhvern hænsnaleik, ekki ósvipaðann þeim við fóru í á afmælinu mínu í fyrrasumar(Alli þú ættir að þekkja hannHlæjandi)en þaðan fótum við heim til fyrverandi Marks og þaðan niður í bæ á einhvern karíókíbar og þar kynnti Mark okkur fyrir Heine Fernandes sem er víst markahæsti leikmaðurinn í dönsku deildinni fyrr og síðar og það fyrsta sem kom upp í hausinn á mér var ´´VÁ! mér er svo drullusama, hvar er barinn á þessari búllu?´´ og eftir það man ég lítið og sögur segja að ég hafi farið snemma heim, það gæti verið satt en kannski ekki við nánari íhugun, við komust sennilega aldrei að sannleikanum varðandi það, því miðurÞögull sem gröfin. en sunnudagurinn fór bara í þynnku og að labba um köben og njóta ferska loftsins og kíktum í hringturninn og sáum yfir alla köben sen var töff svo kíktum við líka í erotica museum og þar varð ég fyrir gríðarlegu sálar- og heilsuskaða en þegar ég er staddur í ´80 tímabilinu og er að skoða kynlífsleiföng í mínu mesta sakleysi en þá heyrði ég í sjónvarpi bak við mig og lít við og þá blasti það við mér svellkaldur ranveruleikinn, en í þessu sjónvarpi andskotans lá einn maður á borði og annar að víkka á honum drullugatið og ég fékk æluna upp í háls, þurfti ekki mikið til þar ég var þunnur, og ég hugsaði ´´núna væri réttast að fara og löðrunga stelpuna í afgreiðslunni fyrir að vara mann ekki við´´ ég meina.....maður var varla búinn að jafna sig eftir ljótu hórumellurnar á föstudagskvöldið þá verður maður fyrir þessu, ég hlýt að hafa gert eitthvað rosalegt af mér. svo fórum við að horfa á ebbe spila sem var skárra en leikurinn hjá thomasi svo fór mánud. bara í að versla og svo heimferð á þriðjud. þar sem ég og berti vorum báðir teknir af tollinum, ég út af fartölvunni minni þarsem þeir héldu að ég hefði keypt hana úti en berti var eitthvað krimmalegur var tekinn í farangurleit og spurður hvort hann notaði fíkniefni en við sem þekkjum berta vitum að notar ekki svoleiðis óþverra, hann er bara high on lifeHlæjandi en góð ferð í alla staði fyrir utan nokkur óskemmtileg moment og vil þakka öllum sem komu að þessari ferð Ebbe, debetkortinu mínu sem stóðst gríðarlegt álag þegar þess þurfti og að sjálfsögðu berta sem var góður ferðafélagi.

Annar hefur þetta verið góð helgi, byrjaði vel þegar mínir menn í man utd unnu stórsigur á liverpool 0-1 með marki frá kamelljóninu john o´shea og vil ég þakka honum hans framlag til leiksins, svo unnum við í tindastól stórsigur á dalvík 4-1 þar sem snorkur átti 35 metra stungusendinu á hinn 38 ára gamla eitursnögga þjálfara okkar Robba sem setti tvö og ingvi o´shea og gummi fabregas sitt hvort markið.

En eins og glöggir men hafa séð í atburðateljarum þá er verið að telja niður þangað til að ég má raka mig en ég fékk áskorun frá berta og guðna að safna skeggi  í  3 vikur og ég er hálfnaður, ég fæ bjórkippu frá sitthvorum en fleirum er velkomið að vera með en því fleiri, því betra. ég verð með fyrir og eftir myndir hérna þegar 3 vikur eru liðnar en það er eins gott að þið borgið mér því kláðinn framann í mér er að drepa mig.

Snorkur Skeggson kveður í billi og er farinn að klóra sérÖskrandi                                                                                                                      

Opnunarblogg SnorksinsSnorri Geir Snorrason

Jæja þá er langvarandi ætlunarverki hjá mér lokið, já gott fólk, Snorkurinn er kominn með bloggsíðu, Þið sem þekkið mig þá er ég ekki mikill gjammari en hér verður allt látið flakka og ef fólki líkar það ekki þá bara so be it.


Ég hef oft verið spurður hvort ég ætli ekki að blogga og maður hefur svona verið á báðum áttum með það en svo ákvað ég bara að láta slag standa og byrja að blogga en ég mun ég deila með ykkur mínum hugleiðingum, tilfinningum og skemmtilegum atvikum, einnig verð ég með myndir af djamminu og fleira svo er planið að skora á vini og gesti að vera með svo kallað ''Gestablogg'' en við sjáum til hvernig það fer, en núna er klukkan orðinn margt fyrir gamlann mann eins og mig, svo er líka leikur á morgun við liðið sem ól mig upp sem fótboltamann, Dalvík, þannig að ég ætla að fara að leggja mig, fyrsta bloggið kemur vonandi á morgun, fer eftir því hvernig leikurinn ferÓákveðinn

Snorkur kveður að sinni

Stay Classy People

Aðalvalmynd

Hver er þessi Snorkur?

  • Nafn: Snorri Geir Snorrason
  • Netfang: snog@internet.is
  • Staður: Skagafjörður
  • Heimilisfang: Víðigrund 14
  • Símanúmer: 8696090
  • Atvinna: Málari
  • Hjúskaparstaða: Á milli sambanda
  • Um mig: Alltaf Léttur:)
  • Annað: snorrigs83@hotmail.com

Auglýsing

Atburðarteljari

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

hvað á að gera næstu helgar?