Eigum við að ræða það eitthvað??Snorri Geir Snorrason

Já ég er mættur!!.......Ætlunarverkið tókst......tindastóll fór upp í 2.deild sem var mikill þéttirþví ég efast um að ég hefði meikað annað ár í 3.deildinni........en allaveganna við fórum til bolungarvíkur, sem ég vonast til að fara aldrei aftur til, og við reyndar töpuðum 2-1 en hverjum er ekki sama fyrst við fórum upp. svo var mikið fagnað í leikslok og sumir fengu sér á leiðinni heim og sumir voru ofdrukknir......ok ég veit hvað þið hugsið  og það er rétt ég var hugsanlega einn af þeim:).......og margt skræytið gerðist á leiðinni heim t.d. menn hlaupandi á evuklæðum einum saman óumbeðnir og eitthvað gerðist á þveráfjallinu en ég ætla ekki að segja ykkur það.......því ég man það ekki:) en svo bara vaknaði ég bara daginn eftir við það að það er barið á hurðina og  ég ranka við mér og sé að ég ligg á baðherbergisgólfinu..........gott djamm:) en í miðri úrslitakeppni þá gerði ég veðmál við strákana.......að ég skyldi raka tindastólsmerkið í bringuhárin á mér og auðvitað stóð ég við mitt og gerði það daginn eftir.......ég hef nú ekki mikið verið að fara í sund síðan en ég sægji fólkið í heita pottinum fyrir mér ´´bíddu þú ert 24ja ára er það ekki?´´




en svo er það næsta helgi.......en þá er laufskálarétt og þá er ég ekki að tala um að fara í réttirnar........ónei! það er ballið sem allir eru að hugsa um og reyndar eru þessar hrossaréttir bara ömurleg afsökun fyrir að halda þetta ball á hverju ári.....en það er ágætt að hafa einhverja afsökun. og þið þarna sem eruð ´´skóla´´ í rvk þá bara verðið þið að koma....ég nenni ekki einn að þetta ball. en það er ekki bara þessi helgi heldur næstu helgar.....helgina eftir laufskálrétt þá er Palli á mælifelli og helgina eftir það þá er lokahófið í fótboltanum og paparnir á mælifelli um kvöldið.......hvar endar þetta?!!


svo eitt að lokum........ég fór með bílinn á verkstæði því hann var með einhverjar gangtruflanir og svo þegar ég fór að athuga seinna um daginn hvað væri að honum segir bílaviðgerðarmaðurinn ´´ það er farinn loftflæðiscensor´´ og þar sem ég veit nákvæmlega ekkert um bíla þá hugsa ég  ´´hvernig getur miðstöðinn haft áhrif á ganginn á bílnum´´ en sú hugsun var langt frá því að vera rétt og viðgerðarmaðurinn fer að útskýra fyrir hvað loftflæðiscensor gerir og hann alveg eins reynt að útskýra tilgang lífsins fyrir 3ja ára krakka og lokum segir hann ´´og nýr censor kosta 70 þús kall´´ og ég hugsa ´´plís vertu byrjaður að tala við einhvern annan´´ en svo átta ég mig á því að hann er ennþá að tala við mig og mig langaði að segja ´´ éttu skít!!´´ en sagði ´´já ok........og hvað?........VERÐ ég að hafa loftflæðiscensor?´´ og þá varð viðgerðarmaðurinn alvarlegur á svip og sagði ´´varstu ekki að hlusta á mig áðan´´ og ég svaraði ´´jú auðvitað.....heyrðu ég ætla að hugsa málið´´ og það lýtur allt út fyrir ap ég verði að blæða fyrir þessu..........nema að ég selji úr mér líffæri......................ég hugsa málið.


p.s.  vantar einhverjum líffæri eða veit einhver um ódýran loftflæðiscensor

Snorkó kveður

Snorri Geir Snorrason

Ég ætla að byrja þetta blogg á einni athugasemd.............þegar maður býr einn þá lendir maður óumflýjanlega í því að þurfa að fara í búðina því ekki lifir maður á loftinu einnu saman og það er ekki það skemmtilegasta sem ég geri en ég læt mig hafa það........ég er einmitt nýkominn úr einni slíkri eftir vel heppnaðann landsleik íslendinga.......ég ákvað að fara í hlíðó eftir leik og kaupi þar helstu nauðsynjar og fer svo í röðina og þar eru 2 eldri konur á undan mér og þegar afgreiðslustelpan er búinn renna vörunum í gegn þá segir hún ´´2653 krónur´´  gamla konan tekur upp  fimmara og segir ´´ég held að ég eigi hérna 653 krónur´´ og hún fer að talja upp úr veskinu og það tók 10 mín........ok ég rétt meikaði það og svo kom seinni konan og var með 5 hluti sem kostuðu 1876 kr. hún tekur 1500 kall og segir ´´ég á nú örugglega 376 kr.´´........þetta var virkilega pirrandi sérstaklega af því að ég sá að hún átti 2000 kr seðil sem hefði verið mun fljótlegra........nei hún ákvað að láta mig og 5 aðra bíða á meðan hún taldi upp veskinu sínu........þetta gerði mig verulega pirraðann og næst mun ryðjast framfyrir!


En að öðru.........það hefur ýmislegt drifið á daga mína eftir að ég bloggaði síðast......t.d. fór ég til dalvíkur á fiskidagshelgina en á föstud. fór ég á bekkjarmót......ok við hittumst á hádegi og fljótlega var farið í sjóstöng og auðvitað fengið sér bjór með því og eftir það fórum við í bruggverksmiðjuna Kalda og það var frír bjór svo lengi sem maður hafði rænu til að drekka en eftir 2 tíma smökkun(held ég) þá rúlluðu flestir þarna út og eftir það er flest í móðu hjá mér....ég man bara þegar ég vaknaði um 9leytið í bakgarði frænku minnar, af öllum stöðum á dalvík þá þurfti ég auðvitað að drepast þar flestir ættingjar mínir sáu mig!.............en ég búinn að afreka það að vera edrú síðan að þetta gerðist aðallega vegna fótboltans en við stöndum einmitt í úrslitakeppni og erum komnir með annan fótinn í 2. deild eftir 3-0 sigur á BÍ/Bolungarvík á sunnud. en á morgun er seinni leikurinn á bolungarvík og ef við tryggjum okkur upp þá verður sko fengið sér á leiðinni heim og  örugglega ALLA helgina og djöfull verður það gaman.....shit! ég fæ gæsahúð af tilhugsuninni.


p.s. ÁFRAM TINDASTÓLL!!!!!

snorkur kveður 

Meinfyndið!Snorri Geir Snorrason


Ég rakst á þennan líka frábæralega leik á netinu, prófiði þetta!!!




Veldu mánuðinn sem þú fæddist

Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá
Apríl- Ég horfði á
Maí- Ég fróaði mér með
Júní- Ég slefaði á
Julí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember- Ég kúkaði á

Veldu núna afmælisdaginn þinn
1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asíksum skiftinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. Stein
16. DVD spilara
17. Klámstjörnu
18. Síma
19. Tölvu
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskifting
27. Yddara
28. Skólaumsókn
29. Birgittu Haukdal
30. Tappatogara
31. Prentara

Veldu Þriðja stafinn í eftirnafninu þínu

A- Afþví að ég elska súkkulaði
B- Afví að mér leiddist
C- Afþví að buxurnar mínar voru of þröngar
D- Af því að þarf alltaf að prumpa
E- Af því að hjartað mitt er tvem nr of lítið
F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G- Afvþví mér finnst egg góð
H- Afþví að ég er á sýru
I- Afþví ég misteig mig
J- Afþví ég er með vörtu
K- Afþví mér líkar Cheer
L- Afþví að ég var skökk/skakkur
M- Afþví ég var full/ur
N- Afþví að mamma sagði mér að gera það
O- Afví ég er hýr
P- Því ér er einmanna
Q- Því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R- Afví að ég er gröð/graður
S- Því mig langar að deyja
T- Því ég hata skóla
U- Því ég þarf að fróa mér
V- Afþví að ég elska náttfata party
W- Afþví að það róar mig
X- Af því að ég elska marmelaði
Y- Afþví að ég elska prump
Ö- Því ég er að safna rassahár

 

p.s. segið frá hvað þig fenguð út úr þessu, ég var með ´´ég slefaði á davíð oddson af því að ég missteig mig´´

snorkó kveður í bili

Ching-chong ChinamenSnorri Geir Snorrason

Jæja þá er einhver afslappaðasta verslunarm.helgi í mínu lífi afstaðin. föstudagurinn var í rólegri kantinum, fór í patrý til emma og sötraði þar í góðra manna hópi og fór svo bara heim um 3leytið. á laugardaginn voru  ég, bibbi og haukur bara edrú  og horfðum bara á dvd, sem virkaði hreinlega kjánalega svona á laugardegi um versló. en eins og svo oft um versló þá er sunnudagurinn aðaldagurinn og  ég, bibbi, haukur og ebbe ákváðum að  skella á sigló þar sem palli var að spila og fengum köttinn til að keyra okkur, við lögðum af stað  um 7leytið og þegar við vorum að keyra í gegnum göngin þá sagði haukur ´´hey, ég kann að loka göngunum´´ og við fengum þá snilldarhugmynd að loka þeim á eftir okkur þegar við færum heim um nóttina og ég var að pæla í að fá mækinn hjá palla og segja ´´síðasti séns að koma sér burt úr þessu greni því við lokum göngunum á eftir okkur´´ þegar við mættum á sigló var ágætisveður en svo kólnaði og okkur var boðið í partý til gunnu finna sem var ágætt þangað til að ebbe fór að kalla alla siglfirðingana búra en þá hófst mikið rifrildi en allt í góðu samt. svo fórum við  á palla og skemmtum okkur svona aldeilis prýðilega vel og vorum allir VEL ölvaðir. en svo um 5leytið ákváðum við að fara koma okkur heim og allir voru mættir nema haukur  og við ákváðum bara að skilja hann eftir en föttuðum svo þegar við vorum lagðir af stað að hann var sá eini sem kunni að loka göngunum þannig að það varð því miður ekkert úr því, djöfull hefði það verið fyndið. en svo daginn eftir varð ég fyrir miklu áfalli, ég vaknaði um 1leytið og fór fram og þar lá bibbi á sínum stað í sófanum og það fyrsta sem hann sagði var ´´jæja snorkur, þetta er síðasti dagurinn okkar saman´´ ég meina..........enginn viðvörun! hann bara skellti þessu fram eins og ekkert væri. ég náttúrulega hljóp aftur inni herbergi og grenjaði úr mér augun. en núna er hann bara fluttur út til foreldra sinna, eins það sé eitthvað betra þar, ég ætla að láta eina mynd fylgja þessu bloggi sem lýsir vist hans hérna á víðigrundinni best.                                  





p.s. er hann ekki bangsalegur?


Snorkó kveður

Ljúfið er Líft!!Snorri Geir Snorrason

Bíddu ég kannast eitthvað við mig hérna.......já þetta er bloggsíðan mín. ég hef ekki bloggað síðan fyrir afmælið mitt og það var um mitt þetta ár(ekki mörg mörg ár signý). það er bara ein ástæða fyrir þessu bloggleysi að það er LETI!! en ég ákvað að koma með eina færslu svona að tilefni verslunarmannahelgarinnar...........talandi um hana, þá hef ég aldrei verið eins óspenntur fyrir þessari helgi eins og núna, ég meina..........ég fattaði bara um síðustu helgi að verslunnarmannahelginn(ok ég skrifa þetta orð ekki aftur, alltof langt) væri að koma. en ég verð líklega bara slakur, 1 eða 2 kvöld í mesta lagi og ætli það sé ekki akureyri verði áfangastaður um helgina, annars er svo vond spá fyrir helgina þannig að ætli það endi ekki með  því að ég  blandi mér irish coffee og liggi undir teppi  og horfi á vitleysingana berjast í norðan strekkingi og vænlegri rigningu:) ég er eiginlega meira spenntur fyiri helginni á eftir þá er þjóðhátíðardagur okkar dalvíkinga, Fiskidagurinn mikli og ég er líka að fara á bekkjarmót á föstudeginum þannig að það er átaka helgi framundan eða doubleheader eins og það kallast á fagmáli, ég er líka búinn að ákveða eitt, þið munið eftir hversu fullur ég var á tindastólsafmælinu.............ég ætla að vera verri á þessu bekkjarmóti hehehe.



svo er sambúð minni og bóbó að ljúka senn og mér eiginlega farið að kvíða fyrir því, er að spá í að fara á sýsluskrifstofuna og skrá okkur úr sambúð. þetta er búinn að vera snilldartími og ég held að mamma hans verði ánægð með hvað ég er búinn að ala stráksa vel upp, ekki það hún hafi eitthvað klikkað en það þurfti bara að lagfæra nokkur atriði og nú er þetta fyrirmyndarsambýlingur(þangað til annað kemur í ljós).


svona rétt í lokinn, þá vorum við að spila við fótboltaleik á föstudaginn sl. við sameinað lið handrukkara á íslandi eða öðru nafni álftanes og ég hef aldrei lent í öðru eins, í hvert skiptið sem við vorum með boltann þá komu minnst hvert tækluðu mann til helvítis og ég man eftir að þegar ég var að standa upp úr  einni tæklingunni þá hugsaði ég ´´hvar er ég? biðröðinni á sólon?´´ sem betur fer sluppum við allir við meiðsli og við unnum leikinn 3-2, bara snilld!

p.s. ALLIR Á DALVÍK Á FISKIDAGINN!!!!!


Snorkur kveður


Þú ert desert!Snorri Geir Snorrason

ok ég er búinn að vera að dæma þessu landsbankamóti í dag í norðan strekkingi og ég get sagt að ef það hefði það hefði byrjað að rigna þá hefði ég nýtt mér einhver ákvæði í mannréttindasáttmálanum, bibbi hefði sótt það mál fyrir mig.



Talandi um bibba þá vita nú flestir að þessi öðlingur er sófadýrið mitt þessa dagana og þetta byrjaði nokkuð vel en strax á 2. degi þá kem ég heim eftir erfiðann vinnudag og sé að bibbi er byrjaður að vaska upp og ég segi ´´bibbi hvað ertu að gera!? ekki helduru að ég sé vaskandi upp hérna alla daga eins einhver skipamella? það er uppþvottavél á staðnum´´ og svarið hans bibba ´´Ó´´. en að öðru leyti gengur þetta bara vel, auðvitað er ósætti annað slagið en þá læt ég hann bara sofa í sófanum hehehe.

En síðasta helgi var helviti góð en þá var 100 ára afmæli tindastóls og það var sko djammað en þetta byrjaði með flottum sigri á skallagrími 3-1 og svo var skemmtunin um kvöldið og ég vil byrja á því að biðja þá sem sátu í 15 metra radíus frá mér afsökunar en á meðan ræðuhöldin voru tók ég þá klikkuðu ákvörðun að fara að hella í mig með tilheyrandi látum segir fólk en ég man svona glefsur og þær er nokkuð klikkaðar. og svo var ballið með geira þar er sama sagan, man bara glefsur, og svo kom þetta eftirpartý, en þetta var eitthvert klikkaðasta partý sem ég hef haldið en ég rölti heim með bibba eftir ballið og á leiðinni sagði ég við hann ´´ég held að ég hafi boðið nokkrum í eftirpartý´´ og bibbi segir´´nei maður mig langar að fara að sofa´´ ég hefði betur hlustað á bibba því áður en vissi af voru ca. 40 manna mættir og þar á meðal hreimur úr landi og sonum, viggi úr írafár og heiða idol og það eina sem ég gat hugsað ´´hvaðan í helvítinu komu þau´´ en svo gerðist heimskulegt atvik, jú gott fólk þið hafið heyrt rétt, haukur skúla og inga birna brutu sófaborðið mitt! og það eina sem ég hef fengið frá þeim eru ásakanir á hvort annað en eftir vandlega íhugun hef ég komist að nokkuð rökréttri niðurstöðu: þið eruð bæði sek og maður sest ekki á glerborð!!! en ég er kominn með nýtt borð og ekki er það hauk og ingu að þakka. en þetta er búið og mesta reiðinn er runnin af mér svo gleymum þessu bara. partýinu lauk svo því ég rak alla út.


Svo er það kvöldið í kvöld en ég ætla að halda smá samkomu bara svona til að halda uppá afmælið mitt, jú það er rétt snorkurinn á afmæli á morgun, 24. júní(blóm og kransar vel þegnir) af því tilefni hef ég fengið geira til að halda ball á hofsósi og aðgangseyrir er 2000 kr sem rennur uppí kaup á nýju sófaborði, haukur og inga borga 3500kr, það er bara sanngjarnt.

p.s. hver missti sig í kosningunni á maryland könnuninni og kaus sömu tegunda 120 sinnum!!?

Afmælisbarnið kveður.

Vúúúúúúúhúúúúúúú!!!!!!!! I´M Back!!Snorri Geir Snorrason

Loksins loksins gott fólk, ég er kominn aftur! ég veit að þetta er hefur verið óafsakanleg hegðun hjá undarfarið að blogga ekki en ástæðan fyrir bloggleysinu er sú að ég var tölvulaus í mánuð en hún var í viðgerð. þannig að ég ætla bara að koma með smá fréttablogg núna og svo verður allt eðlilegt eftir þaðBrosandi

já margt hefur skeð þennan tíma sem ég hef verið tölvulaus t.d. fékk ég mér nýjan bíl, nissan primera árgerð ´99, fótboltinn byrjaði en ég meiddist og hef ekkert verið með en ég er orðinn góður núna þökk sé Lenu sjúkraþjálfara, hef haldið nokkur partý og eftirpartý og í einu þeirra stökk ég yfir sófaborðið sem var þakið glerflöskum, þetta er það eina sem ég man þetta kvöld, bibbi er kominn í sófann hjá mér og þið sem hafið haft áhyggjur af honum þá er það óþarfi því ég er búinn hugsa um hann eins og mitt eigið barn,  og svo hef ég bara verið að fíflast eitthvað útí bæ.

svo eitt að lokum, en núna um helgina eru fótboltamenn að fagna 100 ára afmæli Tindastóls og það verið heilmikið um að vera á morgun á vellinum en þetta byrjar allt með leik tindastóls og skallagríms kl. 14:00 og svo eftir leik munu gamlar hetjur taka fram skóna og sýna gamla takta, um kvöldið verður svo matur og skemmtun í íþróttahúsinu og svo ball með geira sveiflukóngi eftir skemmtunina, þannig að það er um að gera að gera sér glaðan dag og kíkja á leikinn og það þýðir ekki koma með einhverja afsökun eins og ´´það er svo kalt´´ því það er rudda spá fyrir morgundaginn 15-20 stiga hiti.

p.s. ég hef ákveðið að birta ekki niðurstöður úr maryland könnuninni vegna óheiðarleika eins ákveðins aðila sem kaus sömu tegundina 20 sinnum!!

Snorko kveður

Í blíðu og stríðuSnorri Geir Snorrason

Ég veit hvað þið hafið hugsað síðustu daga ´´Guð minn góður! er Snorri hættur að blogga´´ en það er enginn ástæða að örvænta því ég er sko ekki hættur.

Það hefur liðið nokkurn tími frá síðasta bloggi og margt hefur skeð á þeim tíma. ég ætla að byrja á að segja frá af hverju ég hef ekki bloggað upp á síðkastið, en Biggi, maðurinn hennar mömmu, greindist með krabbamein í hálsinum fyrir um hálfum mánuði þannig að ég hef bara ekki haft það í mér að blogga en hvað bigga varðar þá lofar það góðu því læknarnir segja að það séu 90% líkur á að þetta lagist með geislameðferð þannig að þetta lofar góðu.

Annars hefur margt skeð á þessum tíma m.a. lenti ég í rifrildi við pálma sighvatz, húsvörð með meiru, um hvað.......jú gúmmíkúlurnar af gervigrasvellinum! en ég var að fara með(ekki að koma af vellinum) 3. flokkinn sem ég er að þjálfa og partur af liðinu labbaði í gegnum í íþróttahúsið og pálmi sá það og varð reiður og byrjaði að skammast í mér og og ég reyndi að vera eins dipló og ég gat en þegar mér er nóg boðið þá er flestum löngu nóg boðið og fór að svara honum fullum hálsi og þetta endaði mér að ég sagði það sem ég hef hugsað í langann tíma ´´ég veit það að þú nennir ekki að sópa gólfið hérna´´ og þá loksins þagnaði pálmi og varð mjög mjög sár en það sem veraa var að ég ætlaði ekkert að segja þetta, þetta bara valt upp úr mér en það verður bara að hafa það, kannski pálmi fari að hugsa sinn gang.

Svo var síðast helgi nýtt til hins ýtrasta og djammað báða daganna. á föstudeginum var ég með litla samkomu á víðigrundinni þar sem berti, pálmi, friggi, sólborg og vala komu en pálmi og friggi fóru snemma og því vorum við bara 4 eftir, fámennt en góðmennt, og svo kíktum við út og það var ekkert að gerast þannig að ég ætla að víkja að laugardeginum, hann byrjaði á því að pálmi bauð nokkrum heim til sín í grillveislu en bara ég og berti mættum, enn og aftur fámennt en góðmennt, en svo bættist í gleðskapinn þegar leið á kvöldið  og úr varð þessi úrvals samkoma en að henni lokinni var farið á mælifell þar sem úlfarnir voru að spila og þeir eru ekki eins urrandi góðir og þeir segjast vera en engu að síður skemmti ég mér vel eða þangað til að ég og berti fórum í nætursöluna eftir ballið en þar hittum við sannkallað afturúrkreisting djöfulsins og það birtist okkur í kvenmannslíkama, en þannig ere mál með vexti að við félagarnir vrum í röðinni og nokkrir búnir að ryðjast fram fyrir okkur og ekkert mál með það en öllu má nú ofgera en svo loksins þegar ég sá fram á að ég væri næstur í röðinni þó tekur þessi andsetni kvenmaður sig til og ætlar að ryðjast fram fyrir mig en ég hélt nú ekki og sagði ´´nei nei nei þú átt að vera hinumegin á röðinni´´ og upp frá því byrjaði hún að rífa kjaft en en bara brosti framan í hana því ég var í bol sem stóð á ´´Hold sa kjæft kelling´´ og það var allt sem ég þurfti að segja en þessi sendiboði andskotans hélt áfram að rífa og þegar ég var að fara þá sagði ég vað hana kurteisislega ´´lærðu mannasiði beyglan þín´´ og þá sagði hún ´´´ég vona að hamborgarinn standi í þér´´ og þá var berta nóg boðið og hraunaði yfir kellinguna og eftir það löbbuðum við heim, flottur endir á góðri helgi.

Svo eitt að lokum, en það er víst orðið á allra manni vitorði að björni ingi, eða bibbi eins flestir þekkja hann, mun heiðra mig með nærveru sinni í smá tíma í sumar og honum ti heiðurs mun ég halda grillveislu á víðigrundinni(ekkert að þakka bibbi) og því hef ég ákveðið að breyta verðlaununum fyrir 1000asta gestinn á snorkur.bloggar.is, en sá sem verður nr. 1000 fær þann heiður að sofa hjá bibba í stofunni eina nótt, má vera í sama sófanum eða í hinum sófanum(ekkert að þakka bibbi) vonandi verður hörð keppni um þessi verðlaun.

p.s. niðurstöður úr Maryland könnunni koma á næsta bloggi og vonandi verður hægt að leysa erfiðan ágreining innan tindastólsliðsins.

Snorkur kveður

Að láta gott af sér leiða!Snorri Geir Snorrason

´´Þið eruð greinlega vangefnir´´ sagði jón dalmann rútubílstjóri við strákana sem fengu sér trúðaís í borganesi í einu keppnisferðalaginu og héldu samt áfram að fá sér trúðaís eftir það og einhverjir hafa sagt að ég sé vangefinn eftir sumar af þessum bloggfærslum mínum en ég ætla að gera það sama og strákarnir með trúðaísinn.........halda áfram að blogga!


ég hef mikið verið að pæla í einu..........kjaftasögum! ok kjaftasögur hafa verið til síðan frá örófi alda og og munu alltaf vera til en það er eitt sem ég hreinlega þoli ekki, það er hvernig þær breytast milli fólks, ef þið hafið lent í þessu þá vitiði um hvað ég er að tala, ég hef lent í þessu og ég var eyðilagður í nokkra daga hreinlega og var gráti næst en svo tók ég eina ákvörðun.......hætta að taka mark á kjaftasögum og ég ráðlegg flestum að gera það, ef þú veist hvað er satt þá skiptir ekki máli hvað fólk segir, ég fékk stimpilinn ´´dópisti´´ eftir að ég var tekinn í dópleit á mælifelli fyrir misskilning en ég veit hvað er satt í því og það er það eina sem skiptir máli, ég vorkenni bara þeim sem búa til kjaftasögur......þeir kunna ekki á lífið.


en að öðru, ég fékk bækling í póstinum um daginn og á honum stóð ´´leggðu góðu málefni lið´´ sem og ég gerði. ég gat valið um fjölmörg góð málefni en ákvað svo að leggja þeim málefnum lið sem standa mér næst, samtökum sykursjúkra af því að Snorri afi minn var sykursjúkur og samtök parkinsonsjúklinga af því að Geir afi min var parkinsonsjúklingur, þetta kannski voru engar baugsupphæðir sem ég lagði til en mér samt leið betur eftir þetta. en þegar ég var að velja mér málefni þá fannst mér vanta ein samtök.........S.Í.P eða samtök íslenskra piparsveina. það væri snilld, t.d. væri hægt að halda fundi á mánudögum til að bera saman bækur sínar eftir helgar, fjáraflanir af ýmsum toga og svo auðvitað er til fólk sem vorkennir piparsveinum og er til í leggja GÓÐU málefni lið og það væri hægt að nota peningana í skynsamlega hluti t.d. fá einhvern reglulega til sín til þess að þrífa , þvo þvott og elda kannski 3 dag í viku(ekki það að ég kunni ekki að þrífa, þvo og elda, það væri bara gott að sleppa við þetta allt saman). ætli engum öðrum hafi dottið þetta í hug, þið piparsveinar þarna úti endilega segið hvað ykkur finnst um þetta.

P.S. ég hef ákveðið að halda smá keppni hér á snorkur.bloggar.is, þegar ég skrifa þetta hafa 693 gestir komið á síðuna og það eru verðlaun í boði fyrir gest nr. 1000, sem fær viðurnefnið herra eða frú 1000, en verðlaunin eru ......að kynnast daglegu lífi  snorksins(nema að það sé arnar skúlsen, nenni ekki að hanga með honum í heilann dag) en því fylgir hröð atburðarás sem ekki allir geta staðið undir, þannig að nú er bara mál að kíkja nógu oft á síðuna og hreppa þessi eftirsóttu verðlaunGlottandi

Snorkur has left the building.

Hey! hvað heitir þú?Snorri Geir Snorrason

Jæja ég er kominn með kaffibollann og er staðráðinn í að blogga



Ég ætla að byrja á pælingu en ég hef tekið eftir að það er ENNÞÁ verið að sýna beverly hills og melrose place á skjá einum! er það bara allt í lagi eða? er öllum alveg sama? alltaf þegar ég hef komið heim úr vinnunni þá er þetta á skjánum og maður hefur svona óvart dotttið inní einn og einn þátt og þetta er eins og að hverfa aftur til ársins 1994 þegar ég var að fá mín fyrstu bringuhár. Svo eru allir búnir að vera með öllum og það kæmi mér ekki óvart ef það kæmi í ljós að allir í þættinum væru með klamidýu eða flatlús eða eitthvað álíka, en það er búið að vera að sýna þetta nánast alla virka daga vikunnar í eitt ár og mín pæling er þessi: hvað voru margar seríur framleiddar eiginlega eða er kannski ennþá verið framleiða þennan viðbjóð án okkar vitundar, það væri hrylilegt, vil helst ekki hugsa um það.

en eins og flestir vita þá gekk Ágúst Ingi eða ´´Groddi´´ til liðs við sitt uppeldisfélag á dögunum og þvílík himnasending sem það var en hann mætti á sína fyrstu æfingu á mánudaginn og það var greinilegt að hefði ekki mætt í langann tíma en í lok þurfti hann að spurja 12 manns hvað þeir hétu( sem var sérstaklega fyndið í ljósi þess að við vorum 16 á æfingunni) og ef hann þekkti þá ekki það var spurt ´´hver er pabbi´´ það er merki um að maður er að verða gamall, svo á næstu æfingu fór hann að segja söguna af davíði harðars. þegar hann hljóp uppí stúku spurði pabba sinn ráða um hvoru meginn á vellinum væri betra að byrja með tilliti til vindáttar en á meðan sögunni stóð þá varð mér litið á mannskapinn og sá á augnaráði flestra að þeir hugsuðu ´´hver er davíð harðars.´´ svo þegar sögunni lauk þá sagði ég við Grodda ´´þú áttar á því að það eru ekki nema svona 5 í þessu liði sem vita hver davíð harðars. er´´ þá hristi hann bara hausinn en það er bara snilld hann skuli vera kominn til okkar. en svo er allt úlit fyrir að ég leigjanda í sumar til að stytta mér stundir hérna heima og hann er ekki af verri endanum og mun hann sofa í sófanum og kemst þar með í hóp með ekki verri mönnum en mér, Árna Einari, Sigurði Val Árnasyni og Róberti Haraldsyni en ég ætla ekki að segja ykkur hver það er því samningurinn hefur ekki verið handsalaður ennþá en það er strax búið að skipuleggja nakta fimmtudaga og tveggja mann fatapóker á sunnudögum ,nánar um það síðar.

Svo er upphitunarhelgin fyrir verslunarmannahelgina eða ´´páskahelgin´´ eins flestir vilja kalla það og það verður sko tekið á því en þetta byrjar með partý hjá Ingva á föstudaginn(Arnari og Bjarna er ekki boðið) svo er konungur diskósins á laugardaginn svo er líka eitthvað á sunnudaginn sem ég man ekki hvað er, en það verður sko geggjað stuð öll kvöldin ég vona að ég hitti sem flesta(nema Arnar og Bjarna). en núna kaffibollinn búinn og þá er ég hættur að sinni.

P.S. Ef einhver þarf að hitta á mig um páskana þá er ég mjög líklega á mælifelli.


Snorkur kveður með söknuði



Aðalvalmynd

Hver er þessi Snorkur?

  • Nafn: Snorri Geir Snorrason
  • Netfang: snog@internet.is
  • Staður: Skagafjörður
  • Heimilisfang: Víðigrund 14
  • Símanúmer: 8696090
  • Atvinna: Málari
  • Hjúskaparstaða: Á milli sambanda
  • Um mig: Alltaf Léttur:)
  • Annað: snorrigs83@hotmail.com

Auglýsing

Atburðarteljari

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

hvað á að gera næstu helgar?